Fabiana Morais er á ferð og flugi. Hún vinnur sem talskona fatlaðs fólks hjá Landssamtökunum Þroskahjálp og notar tölvuna mikið í sínu daglega starfi. ChatGPT hefur reynst henni afar vel til að lesa yfir texta t.d. þegar hún skrifar tölvupósta og skilaboð í Teams. Einnig notar hún ChatGPT þegar hún útbýr efni fyrir PowerPoint-fyrirlestra. Fabiana fluttist til Íslands frá Portúgal þegar hún var níu ára gömul og talar bæði portúgölsku og íslensku reiprennandi. Hún finnur samt stundum fyrir örlitlu óöryggi með málfræðina. Því skrifar hún textann sinn fyrst inn í ChatGPT og biður um leiðréttingu sem hún getur þá nýtt í það sem hún er að vinna að hverju sinni. Þetta vinnuferli gerir hana sjálfstæðari í starfi og flýtir fyrir vinnunni. Hún þarf þess vegna minni aðstoð frá samstarfsfólki. Hún finnur líka að hún lærir mikið á þessu ferli og bætir eigin tilfinningu fyrir málfræði og stafsetningu þegar hún vinnur með texta á þennan hátt.
„Ef ChatGPT væri ekki til þá þyrfti ég alltaf að vera að biðja samstarfsfólk um aðstoð og spyrja endalaust: ‚Geturðu farið yfir, geturðu farið yfir?‘ Tæknin gerir það að verkum að ég þarf minni hjálp og get gert þetta sjálf.“
Vegna þess að mikil áhersla var lögð á að Fabiana lærði íslensku á skólaárunum lærði hún minni ensku. Hún leggur sig samt fram við að bæta úr því núna og er að læra meiri ensku. Eins og allir vita er enska aðaltæknimálið og stýrikerfið í iPhone er ekki til á íslensku. En þar sem Fabiana talar portúgölsku, sem er eitt af stærstu tungumálum heims, þá getur hún stillt stýrikerfið á iPhone símanum sínum á portúgölsku.

Snjallsíminn spilar stórt hlutverk í lífi Fabiönu, bæði til gagns og gamans. Hún notar hann mikið til að horfa á myndbönd á TikTok og YouTube, þar sem hún fylgist með tónlistarmönnum eða skoðar dýramyndbönd. Síminn er líka mikilvæg tenging til stórfjölskyldunnar í Portúgal. Í gegnum samfélagsmiðla eins og Facebook og Instagram getur hún spjallað við og fylgst með ömmu sinni, afa og öðrum ættingjum.
„Það skiptir mig rosalega miklu máli að geta notað símann til að spjalla við fjölskylduna úti í Portúgal. Í gegnum Facebook og Instagram get ég fylgst með ömmu minni, afa og fólkinu mínu sem er svona langt í burtu.“
Þótt tæknin hjálpi mikið mætir Fabiana líka ýmsum áskorunum í tækniumhverfinu. Hún hefur prófað að nota talgreiningu til að tala við Siri og Google á portúgölsku en tækin skilja hana oft ekki rétt. Vegna þessa kýs hún frekar að skrifa á lyklaborð. Hún telur að betri talgreining myndi hjálpa fólki í hennar sporum mjög mikið. Henni finnst líka leiðsöguforritið Google Maps flókið og óáreiðanlegt. Það vísar henni oft á krókaleiðir eða jafnvel á ranga staði. Þá finnst henni bókunarkerfið á vefsíðu akstursþjónustu Pant (Ferðaþjónusta fatlaðra) of flókið. Hún kýs því að eiga í samskiptum við ferðaþjónustuna með tölvupósti í stað þess að nota síðuna.
Þegar Fabiana er spurð um hvaða tæknilausnir hún myndi vilja hafa aðgengilegar er ekki komið að tómum kofanum. Einfalt og aðgengilegt korta- og rötunarforrit sem þekkir vel bestu leiðir fyrir gangandi vegfarendur kemur fyrst upp í hugann. Einnig nefnir hún snjallt og einfalt aðstoðarforrit sem getur þýtt tal á milli tungumála í rauntíma. Slíkt forrit myndi auðvelda henni og mörgum öðrum samskipti á ferðalögum, sérstaklega þeim sem tala ekki ensku, fólki með fötlun og einnig þeim hluta af eldra fólki sem talar einungis íslensku.
„Mig langar í app eða aðstoðarmann í símann sem getur þýtt á milli tungumála þegar maður spjallar við fólk á ferðalögum, sérstaklega þar sem fólk talar ekki mikla ensku. Það væri svo gott að hugsa um eldra fólk og fatlað fólk sem talar litla ensku, svo það geti bjargað sér úti í heimi og talað við fólk.“
Öll snjöll er samstarfsverkefni TMF og ÖBÍ þar sem við kynnumst fólki sem nýtir tækni á hugmyndaríkan hátt til að auka sjálfstæði sitt. Við deilum hagnýtum lausnum og sögum af því hvernig snjalltækni einfaldar hversdaginn og opnar nýja möguleika fyrir alla.
