Fara beint í efni

HeimFræðslumolar

„Síminn er meiri háttar hjálpartæki!“

ForritTjáning

Ingþór upplifir allt önnur tækifæri eftir tilkomu snjalltækni. Hann upplifir að aðgengi hans og valkostir hafi aukist til muna, sem hentar honum vel, þar sem hann er alltaf jafn virkur og forvitinn. Ingþór fékk málstol í kjölfar slyss fyrir margt löngu, sem hefur áhrif á tjáningu hans og málskilning – en ekki löngun hans til þess að fylgjast með, taka þátt og læra nýja hluti. Ingþór notar símann sinn mest þó hann eigi líka spjaldtölvu og borðtölvu. Borðtölvan nýtist best heimavið og auðvelt er að sjá til á stórum skjánum þar. Þar sem Ingþór notar einungis vinstri hendi er síminn samt oft þægilegri í dagsins önn.  

Ingþór á uppkomin börn og er eins og margir háður samfélagsmiðlum til þess að vera í samskiptum við fjölskylduna. Hann er á Facebook og fylgist aðeins með þar, og talar við son sinn sem býr erlendis í gegnum myndsímtöl.

Málstol hefur sem áður segir áhrif á bæði tjáningu og málskilning. Ennfremur hefur málstol mjög oft neikvæð áhrif á lestur, lesskilning og ritun. En það er svo merkilegt að það hjálpar heilmikið að hlusta á textann um leið og lesið er, því það skilar sér í betri skilningi og auðveldara verður að muna innihaldið. Og snjalltæknin gefur Ingþóri mörg tækifæri til þess að gera það.

„Þróunin síðustu 10 ár hefur verið gríðarleg. Aðgengi að upplýsingum hefur aukist mjög mikið.“

Ingþór hlustar á hljóðbækur frá Hljóðbókasafninu í símanum og hlustar einnig oft á hlaðvörp á kvöldin í Spotify. Spotify býður upp á rauntímatextun á mörgum íslenskum hlaðvörpum sem Ingþór notar mikið. Upplesturinn hjálpar til við að skilja samhengið þegar vinna þarf hratt úr upplýsingum um misflókin efni. Það að hlusta og lesa á sama tíma þjálfar einnig einbeitingu, málfærni og minni. Ingþór notar líka upplestur þegar hann er að fara yfir samfélagsmiðla, skilaboð og fréttir. Þó að hann sé ágætur í að lesa þá er það öruggara ef hann hefur upplesturinn með. Málstolið getur valdið því að ruglingur verði á orðum, tölum og vikudögum en ef hann bæði les og hlustar á upplesturinn eru miklu minni líkur á að misskilningur verði og upplýsingar eru betur skráðar í minnið. Þannig getur hann einbeitt sér að texta í 20 mínútur í senn.

„Ég get þá hlustað aftur og aftur til að vera viss um dagsetningu og tíma.“

Ingþór er með fjölbreytt áhugamál. Hann er menntaður myndlistarmaður og smekkmaður á menningu og listir.  Það er því algjört lykilatriði fyrir hann að hafa í gegnum snjalltækið aðgang að fjölbreyttu efni. Hann er líka mikill hjólreiðamaður og hjólar í öllum veðrum á liggjandi hjólinu sínu. Þá getur hann hlustað á bækur í símanum á meðan hann hjólar, auðvitað með bone-conduct heyrnartólum svo hann heyri vel í umferðinni á meðan. En eins og annað þá eiga hjólin til að þurfa ákveðið viðhald, íhlutir eyðast upp og skemmast og það getur verið ódýrara að gera sjálfur við farartækið. Ingþór hefur notað ChatGPT til að hjálpa sér við hjólaviðgerðir, en bara með því að gefa inn í líkanið nokkur lykilorð og fínstilla spurninguna getur hann fengið svör við næstum hverju sem er. Þá notar hann líka stundum raddinnslátt til þess að skrifa stutt skilaboð til fjölskyldunnar, stök orð sem skiljast vel, eða hringir myndsímtöl sem eru auðveldari en hin hefðbundnu sem reyna bara á hið talaða orð.

„Þegar ég er stressaður þá get ég ekkert talað. Tæknin hefur aukið sjálfstæði mitt og einfaldað öll samskipti við þjónustuaðila og stofnanir.“

Rafræn skilríki hafa líka reynst Ingþóri vel. Nú getur hann sinnt nær öllum sínum erindum sjálfur í gegnum símann eða spjaldtölvuna. Hann á auðvelt með að nota skilríkin og finnst svo miklu betra að nota þau til að snúast í málum á vefsíðum eins og heimabankanum og Island.is. Þá notar hann upplestur í símanum til að lesa fyrir sig skjöl sem hann fær send frá yfirvöldum, þjónustuaðilum og öðrum. Áður fyrr var erfitt og streituvekjandi að þurfa að mæta þjónustufulltrúum og þurfa að eiga í samskiptum um flóknar útfærslur augliti til auglitis. Með því að nota tölvu og rafræn skilríki getur Ingþór rekið sín mál núna á sínum hraða og með sínum stuðningstólum og er því sjálfstæðari en áður. Það er því mjög margt sem Ingþór getur bjargað sér með í dag, sem einstaklingur með hans hömlun hefði ekki getað gert fyrir tíma snjalltækni.