Þegar einstaklingar nota óhefðbundnar tjáskiptaleiðir, svo sem sérhæfð tjáskiptatæki, tjáskiptaforrit í snjalltækjum eða myndaspjöld, er mikilvægt að hafa nokkur grundvallaratriði í huga til að styðja við farsæl samskipti.
Fjórar grunnreglur í samskiptum
- Samskiptin eru aðalatriðið: Samskipti og tjáning skipta mestu máli, ekki búnaðurinn sjálfur. Tækið er aðeins verkfæri til að koma hugsunum í orð.
- Sveigjanleiki: Tjáningarformið má ekki vera of fastmótað. Þarfir notandans breytast og því þarf að endurmeta leiðirnar reglulega.
- Fjölbreytni: Best er að sameina ólíkar leiðir. Notandi getur notað hátæknilausnir samhliða einfaldari myndaspjöldum, svipbrigðum, látbragði og hljóðum.
- Tími og þolinmæði: Það tekur tíma að tileinka sér nýja tjáskiptaleið, læra á skipulagið og finna orðin. Samskiptin taka jafnan lengri tíma og gefa þarf notandanum gott svigrúm til að vinna úr upplýsingum og móta svör sín.
Mikilvægi umhverfisins og viðmælenda
Tjáskiptaleið virkar aðeins ef umhverfið tekur þátt á virkan hátt:
- Sýndu hvernig á að gera (fyrirmynd): Í upphafi á ekki að krefjast svara frá notandanum. Sýndu frekar hvernig tækið eða myndirnar virka með því að nota lausnina sjálf(ur) samhliða tali.
- Skapaðu tækifæri: Frumkvæði notenda er oft takmarkað. Skipuleggðu aðstæður þannig að mörg náttúruleg tækifæri skapist til tjáningar í daglegu lífi.
- Sýndu væntingar: Gerðu ráð fyrir að samskiptin gangi vel og sýndu ósvikinn áhuga á því sem notandinn hefur fram að færa.
Tjáskiptaleiðin þarf alltaf að vera tiltæk
Tjáning er of mikilvæg til að vera skilin eftir heima. Öll eigum við rétt á að hafa aðgang að okkar tjáningarleið hvenær sem er og tala fyrir okkur sjálf. Það eykur sjálfstæði, virðingu og sjálfstraust notandans í samfélaginu.
Hvers vegna er búnaðurinn stundum skilinn eftir? Algengt er að fólk óttist að tæki eða möppur skemmist, blotni eða brotni. Stundum finnst fólki tækin of þung eða hræðist að rafhlaðan tæmist. Í öðrum tilfellum á umhverfið það til að tala fyrir einstaklinginn til að flýta fyrir, en það getur dregið úr frumkvæði hans.
Til að mæta óttanum við skemmdir er mikilvægt að nota góðan verndarbúnað. Höggheld og vatnsheld hulstur, ásamt burðarólum, fást í flestum raftækjaverslunum og auðvelda flutning.
Í hnotskurn: Við vitum aldrei hvenær notandinn þarf að segja eitthvað eða hvað hann vill segja. Ef tjáskiptalausnin er alltaf meðferðis tryggjum við að rödd notandans heyrist.
Vantar þig ráðgjöf?
Ef þig vantar frekari aðstoð eða ráðgjöf varðandi val og notkun á óhefðbundnum tjáskiptaleiðum getur þú bókað ráðgjöf hjá TMF hér.
