Fara beint í efni
Fimm farsímar sem raðað er upp ofan á hvorn annan þannig að búi til mynstur. Bakgrunnur er gulur

HeimFræðslumolar

Hvort á ég að velja: Apple (iOS) eða Android?

HeyrnHreyfingSjónStýrikerfiTjáning

Margir velta þessari spurningu fyrir sér, sérstaklega þegar verið er að velja snjallsíma eða spjaldtölvu fyrir einstaklinga sem þurfa aðgengislausnir. Svarið veltur á þörfum notandans, hvaða aðlögun hann þarf og persónulegum óskum.

Meginmunurinn á þessum tækjum liggur í stýrikerfinu. Tæki frá Apple (iPhone og iPad) nota iOS/iPadOS, en tæki frá Samsung og mörgum öðrum framleiðendum nota Android. Hér á eftir er farið yfir helstu kosti og galla hvers kerfis með tilliti til aðgengis.

Apple (iOS / iPadOS) fyrir síma og spjaldtölvur

Kostir:

  • Staðlað útlit: Útlit og virkni kerfisins er einsleit á milli síma og spjaldtölva. Það gerir notendum auðveldara að átta sig á tækjunum og flytja sig á milli smáforrita.
  • Mikið úrval tjáskiptaforrita: iPad er útbreiddasta spjaldtölvan í tjáskiptakennslu. Stórt úrval er af sérhæfðum aðgengis- og tjáskiptaforritum (t.d. GoTalk Now, TD Snap) sem eru einungis aðgengileg í iOS.
  • Frábær stuðningur við heyrnartæki: Apple býður upp á MFi (Made for iPhone/iPad) staðalinn. Hann tryggir stöðuga og beina tengingu við flest heyrnartæki.
  • Hreyfi- og augnstýring: Kerfið býður upp á áreiðanlega rofastýringu (Switch Control) fyrir ytri rofa og nýrri iPad tæki styðja beina augnstýringu (bæði í gegnum ytri tæki og innbyggða myndavél).
  • Mikið úrval aukahluta: Þar sem iPad er mikið notaður í aðgengisskyni er úrval af höggheldum hlífum með handföngum, standi og innbyggðum hátölurum mjög mikið.

Gallar:

  • Ekki á íslensku: Stýrikerfið er ekki til á íslensku. Því eru allir textar og valmyndir á ensku eða öðrum erlendum málum.
  • Engin íslensk raddstýring: Tækin skilja ekki íslenskt tal og því er ekki hægt að gefa þeim raddskipanir á íslensku.
  • Talgervill: Kaupa þarf sérstaka áskrift að Símarómi til að fá íslenskan talgervil fyrir upplestur á texta.

Android fyrir síma og spjaldtölvur

Kostir:

  • Íslenskt mál: Stýrikerfið er í boði á íslensku og því eru allar valmyndir og leiðbeiningar á móðurmálinu.
  • Ókeypis íslenskur talgervill: Innbyggður íslenskur talgervill (Google eða Samsung) fylgir kerfinu og forritum þess án endurgjalds. Einnig er hægt að hlaða niður Símarómi og nota karlmannsröddina Stein frítt.
  • Heyrnartækjatengingar: Nýrri Android tæki styðja ASHA staðalinn fyrir beina hljóðvistun í heyrnartæki, þótt virknin sé best í dýrari tækjum.
  • Sveigjanlegt verð og stærðir: Android spjaldtölvur og símar fást í mörgum mismunandi stærðum og verðflokkum.

Gallar:

  • Minna úrval tjáskiptaforrita: Úrval sérhæfðra tjáskiptaforrita er talsvert minna en hjá Apple, sérstaklega fyrir spjaldtölvur.
  • Takmarkaðri stuðningur við stýringar: Stuðningur við rofastýringu og augnstýringu er ekki eins víðtækur eða samþættur og hjá Apple.
  • Breytilegt útlit og fylgihlutir: Útlit er ólíkt á milli framleiðenda (t.d. Samsung eða Lenovo) og mun erfiðara getur verið að finna sérhæfðar aðgengishlífar fyrir Android spjaldtölvur.