Fara beint í efni
Hér sést í hendur að vinna í tölvu en önnur hendin er gervihendi.

HeimFræðslumolar

Einnar handar innsláttur

Einnar handar innsláttur í tölvu getur verið krefjandi þar sem hefðbundin lyklaborð eru hönnuð fyrir notkun beggja handa. Algengar áskoranir eru hægari innsláttur, aukið álag á hönd og úlnlið og erfiðleikar við að ná til ákveðinna lykla eða nota flýtilykla.

1. Sérhönnuð lyklaborð

Til eru lyklaborð sem eru sérstaklega hönnuð fyrir einnar handar notkun t.d. Tipy og Matias Half-QWERTY. Þau eru formuð þannig að fingurnir nái auðveldlega til allra lykla án þess að höndin þurfi að ferðast mikið.

2. Aðlögun á hefðbundnu lyklaborði

Hægt er að nota venjulegt lyklaborð með hugbúnaðarstillingum sem færa lyklana nær virku hendinni eða breyta virkni þeirra.

  • Hugbúnaðarlausnir (Mirroring/Half-QWERTY): Hægt er að stilla lyklaborðið þannig að lyklarnir „speglast“. Ef ýtt er á „Space“ takkann breytist virkni lyklaborðsins.
  • Hnappafesta (Sticky Keys): Í stýrikerfum tölva (Windows/macOS) er hægt að virkja Sticky Keys. Þá þarf ekki að halda inni tveimur tökkum í einu.

Góð ráð fyrir vinnuaðstöðuna

  1. Smályklaborð (Compact): Mælt er með litlu lyklaborði (án talnaborðs hægra megin) til að auðvelda fingrum að færa sig á alla hnappa.
  2. Staðsetning: Staðsetjið lyklaborðið þeim megin sem virka höndin er, þannig að úlnliðurinn sé beinn og öxl slök.
  3. Þjálfun: Alveg eins og með hefðbundna fingrasetningu krefst einnar handar innsláttur þolinmæði og æfingar til að ná góðum hraða.