Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir er fiktari, hún er óhrædd við að prófa sig áfram og hefur náð ótrúlegum árangri með forvitni og hugrekki að vopni. Hún notar hjólastól og er með töluverða hreyfiskerðingu og það er því til mikils að vinna með því að ná að hagnýta snjalltækni.
„Þetta breytti því að ég get notað símann aðeins meira… sjálf af því að hendurnar mínar eru alveg lokaðar, get ekki notað þær. Ég meina stundum næ ég því að þvinga fingurna utan um en raddstýringin hjálpar mér rosalega mikið.“
Raddstýringin er einmitt það sem hentar henni best. Að geta notað snjalltækni án þess að þurfa að snerta tækið. Aðspurð segist hún geta allt, en það er nokkuð ljóst að það er smá vinna að reyna að hagnýta lausnirnar eins og er.
Sigurbjörg notar iPhone og þar er stærsta hindrunin tungumálið. Vörurnar frá Apple eru ekki með íslensku sem innbyggt tungumál, en hún hefur vanið sig á að nota ensku. Hún notar það sem heitir Voice Control og getur flett og hringt með því einu að tala við tækið.
Þessi tækni eykur bæði öryggi og sjálfstæði hennar. Hún er ekki með aðstoðarfólk inni hjá sér og þarf því stundum að hringja. Það veitir töluvert öryggi að geta kallað eftir aðstoð þegar svo ber undir.

Sigurbjörg getur fylgst með samfélagsmiðlum með því að biðja Siri um að opna og svo flett í gegnum innihaldið með því að segja „next“. Hún hefur fundið leið til þess að komast inn í bankaappið sitt með því að nota andlitsgreiningu og svo biðja Siri um að stimpla inn leyninúmerið. Auk þess er hún með einhverjar umhverfisstýringar á símanum, svo hún getur til dæmis opnað hurðina. Hún er með Appletv fjarstýringuna í símanum og nær þannig að tengjast sjónvarpinu gegnum símann. Það gerir henni kleift að velja sjónvarpstöððvar og þætti með því að að skipa símanum fyrir. Það er mikill kostur, en margt fatlað fólk kannast við að sjónvarpið geti verið óyfirstíganleg hindrun, með fjölda fjarstýringa og mismunandi viðmóta sem þarf að rata í gegnum.
Helstu vankantarnir eru íslenskan, ef forrit heita íslenskum nöfnum sem enskumælandi Siri á erfitt með að skilja þá er ekki hægt að fá hana til þess að opna þau. Sigurbjörg getur opnað og lesið tölvupósta, en getur ekki svarað á íslensku – svo stundum svarar hún bara á ensku. Sum viðmót eru ekki tilbúin fyrir raddstýringu, og það er til dæmis ekki hægt að fletta í pósthólfinu á island.is.
En Sigurbjörg nálgast þetta allt saman með forvitni, prófar sig áfram, lendir á veggjum og finnur lausnir. Seiglan er besti vinur hennar, en hún viðurkennir að það væri mun betra að geta nálgast þessa tækni sem tilbúna lausn og fá hjálp við að læra á hana. Enda er það ekki á allra færi að prófa sig áfram. Þessi tækni er aðgengilleg á móðurmáli í löndunum í kringum okkur og það væri mikil bylting ef það væri hægt að nota íslenskuna. Ástæðan fyrir því að fólk eins og Sigurbjörg reynir að klóra sig í gegnum þetta á ensku er vegna þess að þetta breytir öllu varðandi aðgengi. Eða eins og hún sjálf segir:
„Það sem þessi tækni gerir fyrir mig er að ég er ekki eins mikið upp á aðra komin og ég var áður.“
Öll snjöll er samstarfsverkefni TMF og ÖBÍ þar sem við kynnumst fólki sem nýtir tækni á hugmyndaríkan hátt til að auka sjálfstæði sitt. Við deilum hagnýtum lausnum og sögum af því hvernig snjalltækni einfaldar hversdaginn og opnar nýja möguleika fyrir alla.
