Sandra Dögg er útivinnandi tveggja barna móðir sem starfar sem nuddari. Hún er lögblind og notar leiðsöguhund, hvíta stafinn og stafræna tækni til að komast í gegnum hversdagsleikann. Eins og margar konur á hennar aldri er Sandra með margt á sinni könnu, barnauppeldi, vinnu og félagsstarf. Hún notar snjallsíma fyrir nánast öll sín verkefni, svo sem svörun tölvupósta, bankaviðskipti, tónlist og samskipti við viðskiptavini. Hún kýs símann fram yfir tölvu þar sem hann er fljótlegri og fyrirferðarminni. Hún nefnir að snjalltæki spari mikinn tíma, auk þess að auka sjálfstæði og öryggi. Án þeirra væri hún háðari öðrum og tregari til að prófa nýja hluti, eins og að fara í göngutúra á ókunnugum stöðum.
„Ég er ekki viss um að ég færi út að labba í ókunna átt ef ég væri ekki með símann. Ég myndi örugglega alltaf labba nákvæmlega sama hringinn þar til ég fengi einhvern með mér. Án tækninnar yrði maður miklu háðari öðrum og lífið staðnaðra.“
Snjallsíminn er með innbyggðum skjálestrarbúnaði sem heitir VoiceOver í iPhone-símum og TalkBack í Android-símum. Með honum getur blindur einstaklingur snert skjáinn, fengið upplýsingar um efni hans og tvísmellt til að velja. Þótt stýrikerfið í iPhone sé ekki á íslensku notar Sandra Dögg enskan talgervil bæði fyrir enskan og íslenskan texta. Hún segir það lítið mál eftir að hún hafi vanist hreimnum. Stærsta hindrunin í tækninni er skortur á innbyggðum íslenskum talgervli og íslenskri raddgreiningu á borð við Siri. Hún notar því ensku til að tala inn texta t.d. í dagatals- og áminningarforrit.

Snjallsíminn hjálpar henni einnig á heimilinu þar sem erfitt getur verið að nota hefðbundna snertiskjái á heimilistækjum. Sandra notar smáforritið Home Connect til að stjórna bæði bakarofni og helluborði með snertitökkum, svo sem til að kveikja, slökkva og stilla hita. Hún valdi dýrara snjallhelluborð sem gerir henni kleift að stjórna hitastigi á mismunandi svæðum í gegnum appið, og þótt lausnin hafi kostað meira sér hún alls ekki eftir þeirri fjárfestingu.
Sandra gengur mikið og notar leiðsögusmáforritið Voice Vista daglega til að fá upplýsingar um staðsetningu og götuheiti, en það hjálpar henni einnig að búa til kort í huganum. Hún skráir eigin punkta í forritið til að fá tilkynningar þegar hún nálgast ákveðna staði og hjálpar það henni sérstaklega á leiðum sem hún þekkir ekki vel. Sandra notar einnig smáforritið Be My Eyes, þar með talda gervigreindarútgáfu, til að fá aðstoð við að bera kennsl á liti á fötum eða lesa á skilti.
„Ég nota Voice Vista daglega þegar ég fer í göngutúra. Appið segir mér hvaða götuheiti ég er að nálgast og þannig get ég búið til kort í huganum yfir hverfið. Ég set líka inn eigin merkisstaði, eins og bekk eða heimilisfangið mitt. Ef ég villist get ég bara valið punktinn og appið losar mig heim.“
Það er næstum ómögulegt að vera virkur þátttakandi í íslensku samfélagi án þess að fylgjast með því sem gerist á samfélagsmiðlum. Sandra Dögg notar samfélagsmiðla mikið, sérstaklega Facebook og Messenger, en einnig Snapchat og Instagram. Þar sem mikið af efni á miðlum eins og Snapchat og Instagram er í formi mynda fær hún oft aðstoð við að greina hvað er á þeim. Í persónulegum samskiptum notar hún mikið hljóðskilaboð á Messenger til að auðvelda sér samskiptin.
Þegar heim er komið notar hún Apple TV, sem skartar innbyggðum talgervli, og erlendar streymisþjónustur sem bjóða upp á sjónlýsingar á mörgum þáttum og myndum. Erfiðara er að nota RÚV þar sem smáforritið er ekki að fullu aðgengilegt. Það sem hana saknar helst er að geta spilað tölvuleiki, en þar vantar mikið upp á aðgengi. Annars eru fá vandamál sem Sandra getur ekki leyst með símanum; hún pantar leigubíla með smáforriti og notar stafrænar greiðslur með símanum og sleppur þannig við vanda vegna óaðgengilegra greiðsluposa.
„Ég nota smáforrit til að panta leigubíla og fylgjast með í Völuappinu hjá strákunum, til dæmis hvort þeir séu vaknaðir eða hvernig þeir borðuðu. Það er allt fullkomlega aðgengilegt.“
Öll snjöll er samstarfsverkefni TMF og ÖBÍ þar sem við kynnumst fólki sem nýtir tækni á hugmyndaríkan hátt til að auka sjálfstæði sitt. Við deilum hagnýtum lausnum og sögum af því hvernig snjalltækni einfaldar hversdaginn og opnar nýja möguleika fyrir alla.
