Tjáskiptaspjöld eru aðgengileg og ódýr lausn sem byggir á útprentuðum myndum, táknum eða orðum sem notandi bendir á til að tjá sig. Spjöldin eru oft plöstuð til að auka endingu og gera þau nothæf við ýmsar aðstæður, t.d. við matborðið eða utandyra.
Hönnun og uppsetning
Fjöldi mynda: Fer eftir getu notandans. Huga þarf að sjón og hreyfifærni (nákvæmni við bendingar) þegar ákveðið er hversu stórar myndirnar eiga að vera og hversu margar komast fyrir á spjaldinu.
Innihald: Spjöld geta verið almenn (grunnorðaforði) eða bundin við ákveðnar aðstæður eða afþreyingu (þemaspjöld), t.d. spjald fyrir „föndur“, „leikvöllinn“ eða „matmálstíma“.
Myndefni: Hægt er að nota sérhæfða myndabanka (táknmyndir), ljósmyndir úr umhverfi notandans eða myndir af netinu.