Fara beint í efni

HeimTæknilausnirLyklaborð, mýs og rofar

Spáritun og flýtiorðasöfn

ForritHeyrnHreyfingMinniSjónStýrikerfiTjáningÞroski

Hvað er spáritun og flýtiorðasöfn? Spáritun (e. predictive text) giskar á næsta orð þegar skrifað er, sem flýtir fyrir textagerð. Flýtiorðasöfn leyfa þér að búa til stuttar skammstafanir sem breytast sjálfkrafa í heilar setningar (t.d. breytist „mkv“ í „Með kærri kveðju“).

Fyrir hverja nýtist þetta? Lausnin nýtist öllum sem vilja skrifa hraðar. Hún er sérstaklega gagnleg fyrir einstaklinga með hreyfihömlun, fínhreyfiskerðingu eða lesblindu, þar sem hún fækkar innsláttarvillum og dregur úr líkamlegri áreynslu við ritun.

Hvernig er þetta notað? Til að fá sem besta spáritun á íslensku í snjallsíma er mælt með því að sækja og virkja lyklaborð eins og SwiftKey eða GBoard í gegnum App Store (fyrir iPhone) eða Google Play Store (fyrir Android).

Öryggi og persónuvernd Þegar nýtt lyklaborð er tekið í notkun biður síminn oft um „fullan aðgang“ (e. full access) svo hugbúnaðurinn geti lært á þinn ritstíl. Til að tryggja fyllsta öryggi og persónuvernd er mikilvægt að slökkva á skýjasamstillingu (e. cloud sync) og sjálfvirkri sendingu á greiningargögnum (e. diagnostics/analytics) í stillingum lyklaborðsins. Með því að takmarka þessa þætti verða persónuupplýsingar og ritstíll áfram geymd staðbundið í tækinu þínu en sendast ekki til þriðja aðila.

Leiðbeiningar um uppsetningu flýtiorðasafns