Ljóslestur (OCR) er tækni sem breytir prentuðum texta af myndum eða skönnuðum skjölum yfir í stafrænan texta. Þegar textinn er orðinn stafrænn getur tölvan eða snjallsíminn leitað í honum, breytt honum eða lesið hann upphátt með talgervli.
Þessi tækni brúar bilið á milli pappírs og tölvu. Hún nýtist öllum en er sérstaklega mikilvæg fyrir fólk með lestrarerfiðleika, lesblindu eða sjónskerðingu.
Skref-fyrir-skref: Hvernig á að ljóslesa?
Þú getur notað ljóslestur á einfaldan hraðvirkan hátt í þeim tækjum sem þú átt þegar:
- Í snjallsímanum (iPhone og Android): Nýrri símar ljóslesa beint í gegnum myndavélina. Þú bendir á texta (t.d. í bók eða á skilti), bíður eftir að lítið tákn fyrir texta birtist á skjánum og getur þá valið textann og afritað hann. Einnig má nota ókeypis öpp eins og Microsoft Lens eða Google Keep til að geyma textann.
- Í tölvunni (Google Docs): Ef þú átt skannað PDF-skjal eða mynd geturðu hlaðið henni upp í Google Drive. Hægri-smelltu á skrána, veldu „Opna með“ og veldu „Google Docs“. Google breytir þá myndinni sjálfvirkt í texta sem þú getur unnið með.
- Í tölvunni (Adobe Acrobat): Ef þú notar Adobe Acrobat geturðu opnað skannað PDF-skjal og valið verkfærið „Scan & OCR“ til að gera skjalið leitarbært og lesanlegt.
Hvernig á að hlusta á textann?
Þegar textinn er orðinn stafrænn er auðvelt að láta lesa hann upp með íslenskum talgervlum:
- Hægt er að nota talgervisappið Símaróm sem kerfisrödd í símum og spjaldtölvum. Þegar appið hefur verið sett upp er röddin skilgreind sem kerfisrödd í tækinu. Í Android er hún síðan notuð með aðgengishnappi og textalestri (e. Select to Speak), en í iOS (Apple) með aðgengishnappi og Read & Speak (e. Speak Selection / Speak Screen).
- Microsoft Word og Edge vafrinn eru með innbyggðar íslenskar raddir (Guðrúnu og Gunnar). Í Chrome vafra er hægt að nota viðbætur eins og Read Aloud (Karl og Dóra).
- Sjá einnig fyrri færslu hér á vefnum Talgervlar:Íslenskar raddir fyrir tæki og tól.
Gott er að hafa í huga að ljóslestur virkar best ef upprunalega myndin er skörp, vel lýst og textinn beinn. Tæknin á erfiðara með flókna töfluskiptingu og mjög óskýra rithönd.
