Fara beint í efni

HeimTæknilausnir

Raddinnsláttur

Raddinnsláttur er tækni sem gerir þér kleift að tala við tölvuna eða símann þinn í stað þess að nota lyklaborð. Tækið hlustar á röddina þína og breytir orðunum þínum sjálfkrafa yfir í ritaðan texta á skjánum. Raddinnsláttur er frábært hjálpartæki fyrir fólk sem á erfitt með að nota lyklaborð (t.d. vegna hreyfihömlunar eða gigtar) og fyrir þá sem eiga erfitt með stafsetningu vegna lesblindu eða annarra erfiðleika. Dæmi um lausnir sem leyfa raddinnslátt á íslensku eru Hreimur frá Málstað og Voice typing í Google Docs. Þá er hægt að kaupa aðgang að AI viðbótum við vafra sem skilja íslensku, s.s. Aivo og Voice Everywhere.  

Lausnir

2 lausnir í þessum flokki

Kami

Kami er forrit sem gerir nemanda auðvelt að skrifa inn í skjöl í tölvu eða spjaldtölvu og getur því hjálpað nemendum sem eiga erfitt með handskrift að vinna í verkefnabókum.

ForritHreyfingTjáning
Skoða nánar

Málstaður: Snjallar lausnir fyrir íslensku

Málstaður hýsir fjórar snjallar máltæknilausnir. Markmiðið er að styðja við íslenska málnotendur og auðvelda vinnu með texta og tal í daglegu lífi og starfi.

AðgengiForritTegundTjáning
Skoða nánar