iPad í stuðningi og þjálfun
Skapandi verkfæri í stuðningi og þjálfun einstaklinga á öllum aldri
- iPad skapandi verkfæri í þjálfun og leik.
- Farið sérstaklega í gagnlegar aðgengisstillingar í vélinni.
-
Smáforrit (öpp) skoðuð og prófuð sem nýtast í stuðningi og þjálfun. Sérstök áhersla lögð á smáforrit þar sem hægt er að setja inn eigin myndir, texta og tal.
Unnið saman í smáforritum, ýmis góð ráð gefin og kynntar margar hugmyndir um notkun.
Þátttakendur fá sendan lista yfir ókeypis öpp til að hlaða niður fyrir námskeiðið.
Markhópur námskeiðsins: Fagfólk og aðrir sem vilja kynna sér iPad sem verkfæri í stuðningi og þjálfun einstaklinga á öllum aldri.
Þátttakendur koma með iPad á námskeiðið.
Námsgögn og leiðbeiningar með öppum sem farið er í fylgja.
Næstu námskeið:
- Ekkert námskeið í boði að svo stöddu. Hægt að óska eftir námskeiði lágmarksfjöldi er fimm.
Bjóðum einnig að fara með námskeið út í skóla og stofnanir.
Minnum á að hægt er að sækja um endugreiðslu til stéttarfélaga vegna námskeiða hjá TMF.
Námskeið haldið að Háaleitisbraut 13, 4 hæð
Kennari: Sigrún Jóhannsdóttir, talmeinafræðingur
Það er hægt að óska eftir námskeiði á öðrum tíma. Lágmark 5 þátttakendur.
Bjóðum einnig upp á að halda námskeið í skólum og stofnunum.