iPad skapandi verkfæri í námi, leik og þjálfun
Grunn- og leikskólamiðað og fyrir sérkennslu og stuðning á öllum stigum.
- iPad skapandi verkfæri í námi í leik.
- Gagnlegustu og snjöllustu stillingarnar og leiðirnar skoðaðar.
- iPad sem margmiðlunarverkfæri að skapa, skrásetja og miðla.
- Kynning á völdum öppum og þau skoðuð og prófuð.
Sérstök áhersla á öpp sem bjóða upp á að setja inn eigin myndir, myndbönd, texta og tal. - Unnið saman í öppunum ýmis góð ráð gefin og kynntar margar hugmyndir um notkun appana.
Þátttakendur fá sendan lista yfir ókeypis öpp til að hlaða niður fyrir námskeiðið.
Markhópur námskeiðsins: Fagfólk, foreldrar og aðrir sem vilja kynna sér iPad sem skapandi verkfæri í námi grunn - og leikskólabarna. Hentar einnig fyrir þá sem starfa í sérkennslu og stuðningi við fólk á öllum aldri.
Þátttakendur koma með iPad á námskeiðið.
Námsgögn og leiðbeiningar með öppum sem farið er í fylgja
Kennari: Sigrún Jóhannsdóttir, talmeinafræðingur
Það er hægt að óska eftir námskeiði á öðrum tíma. Lágmark 5 þátttakendur.
Bjóðum einnig upp á að halda námskeið í skólum og stofnunum.
Dagsetning: Mánudagur 11. mars klukkan 13-16 SKRÁNING
Staðsetning: Háaleitisbraut 13, salur 4 hæð