Forrit og öpp til að búa til myndrænt efni - Talgervlar á íslensku sem fylgja með forritum og vefsíðum
Töflur með myndum og texta. Texti verður tal.
Frí forrit og öpp
til að búa til myndrænt efni til skipulagningar og boðskipta.
Unnið í nokkrum
fríum forritum á netinu sem bjóða upp á að búa til töflur og annað myndrænt
efni til útprentunar. Líkt og margir
þekkja frá Bordmaker forritinu.
Skoðum nokkur frí (eða ódýr) skipulags öpp fyrir iPad.
Skoðum nýjar talgervlaraddir í Microsoft Edge vafranum og Microsoft Office 365. Einnig Read Aloud viðbótina í Chrome vafranum.
Skoðum hvernig má nota íslensku raddirnar í iPad.
Þátttakendur fá sendan lista yfir öppin og geta tekið með sér iPad eða valið að fylgjast með kynningunni.
Á námskeiðinu er gert ráð fyrir að þátttakendur vinni í forritum á tölvu sem kynnt eru
fólk er því beðið um að taka með sér fartölvu á námskeiðið. Þeir sem ekki hafa tök á að taka með tölvu en geta komið með iPad geta unnið verkefnin á iPad.
Þátttakendur fá íslenskan leiðarvísir með öllu efninu.
Hægt að óska eftir námskeiði. Lágmarksþáttaka eru fimm. Einnig hægt að fá námskeið út í skóla þar er eitt verð óháð fjölda. Netfang til að óska eftir námskeiði sigrun@tmf.is