Brot af því besta - Valið efni úr vinsælustu námskeiðum TMF
Grunn- og leikskólamiðað og til stuðnings óháð aldri
Námskeiðsþættir:
- Farið í nýjar talgervlaraddir í Microsoft Edge vafranum og Microsoft Office 365. Einnig Read Aloud viðbótina í Chrome vafranum.
- iPad gagnlegar stillingar
- Ritvinnsluforritin Pages og Word í iPad og hvernig má taka upp tal og fá texta lesinn upp með talgervli. Kynnt hvernig nota má lyklaborðsappið Gboard.
- iPad í lestri, ritun og málörvun. Unnið í öppunum Book Creator, Bitsboard, Story Creator og Little Story Creator. Þetta eru öpp sem bjóða upp á að setja inn eigin myndir, texta og tal. Einnig verða sýnd önnur gagnleg öpp.
Skoðum hvernig má fá texta skannaðan inn og upplesinn á íslensku í iPad og snjallsímum.
- Stutt kynning á kennsluaðferðinni Að skrifa sig til læsis.
Kennari Sigrún Jóhannsdóttir talmeinafræðingur og framkvæmdastjóri TMF