Lesblinda, lestrarörðuleikar

Talgervlar í tölvum, raddinnsláttur og eyðufylling í skjöl.

Talgervill les upp allan texta sem er skrifaður eða birtist í tölvu. 

Talgervlaraddir sem eru tiltækar á netinu og fylgja forritum eins og Microsoft hafa gert notkun þeirra mun aðgengilegri fyrir alla notendur þar sem þær fylgja frítt með Microsoft forritum og Microsoft Edge vafranum.

Edge-vafrinn Microsoft 365 og íslensku raddirnar Guðrún og Gunnar.

 Talgervlaraddirnar Guðrún og Gunnar í Edge vafranum

Aðgengilegt lestaumhverfi í Edge vafranum og   Microsoft Word

Fræðslumyndbönd

Miðeind hefur opnað vefinn Málstaður
þar sem hægt er finna þrjár máltæknilausnir fyrir íslensku. Málfríður er til að leiðrétta stafsetningarvillur og málfar í texta. Hreimur er talgreinir sem getur breytt tali í texta, bæði í gegnum innlestur eða með að hlaða upp skrá. Svarkur er spurningasvörun og heimildaleit sem flettir uppi svörum á Wikipedia og á Vísindavefnum. Lausnirnar eru að mestu ókeypis í notkun en hægt er að kaupa áskrift til að fá aukna þjónustu ef fólk þarf. 

Ivona Reader PC forrit með íslensku talgervils röddunum Karl og Dóru
Lánþegar Hlóðbókasafnsins fá Ivona Reader forritið frítt úthlutað aðrir geta keypt forritið hjá Blindrafélaginu sem er söluaðili. Nánari upplýsingar hjá Blindrafélaginu. TMF heldur námskeið í Ivona Reader forritinu. Þeir sem geta orðið lánþegar hjá Hljóðbókasafninu Allir þeir sem sannanlega geta ekki nýtt sér prentað mál t.d blindir, sjónskertir og lesblindir en ýmsar hamlanir og aðstæður geta þó veitt aðgang að safninu, til að mynda hreyfihömlun, geðfötlun, löng sjúkralega og þroskahömlun.

Simaromur talgervilsapp Símarómur
fyrir Android síma kom á markað 2021 frá
Grammatek 

Read Aloud sjá undir fræslumyndbönd
Readaloud

Natural Reader er ókeypis enskur talgervill, líka hægt að kaupa einstaklingsútgáfu sem býður t.d upp á að tengja upplesturinn beint inn í Office forrit, Explorer og Firefox. Þegar búið er að hlaða niður íslenskum röddum er hægt að kalla þær fram í Natural Reader.


Raddinnsláttur á íslensku

Tiro_1642759077773
Á vefnum Tíro er boðið upp á raddinnslátt undir Diktering. Síðan er hægt að afrita textann og flytja hann þangað sem óskað er.  

Raddinnslattur-mynd
Í Google skjölum er boðið upp á raddinnslátt á íslensku.

 

Eyðufylling í pdf skjöl/vinnubækur


Með Foxit Reader forritinu sem er PDF lesari er hægt að skrifa beint inn á PDF skjöl eins og t.d. vinnubækur 
Að koma sér af stað í Foxit Reader, stuttur leiðarvísir.

Kami er viðbót í Chrome vafranum.
Einfalt og þægilegt verkfæri til að fylla inn í verkefnabækur. Til að fá afnot af
öllum verkfærunum eins og upplestur og upptöku þarf að kaupa aðgang. 

SnapType app fyrir iPad taka/ná í mynd og skrifa inn á myndina. Geta verið verkefnablöð sem fyllt er inn í með lyklaborðinu í stað Þess að skrifa með blýanti.

Gagnlegar síður

Snjallkennslan gagnlegt efni m.a undir flipanum stuðningur.

Snjallvefjan gagnlegar lausnir kynntar.

LesVefurinn um læsi og lestrarerfiðleika.


   Norræni DVD diskurinn frá 2006 um lestrar-og ritstuðning.